Minningarsíða Sesars Þórs
Minningarsíður
16.06.2011 00:05:17 / sesar

Til hamingju með daginn elsku Sesar okkar.

Sesar Þór


Í dag hefðir þú orðið 25 ára og af því tilefni fannst okkur sniðugt að setja hér inn frumsamið ljóð eftir þig síðan þú varst í 10. bekk. 
Fyrir þetta ljóð fékkstu verðlaun á Degi íslenskrar tungu.

Þú

Þegar ég horfi í augun þín

er eins og jörðin boppi

eins og bolti og fuglarnir syndi

aftur á bak

 

Þegar að ég hugsa um þig

líður mér eins og hraðsuðukatli

sem er við það að springa

 

Þegar að þú horfir á mig

hugsa  ég um hvað þú ert að

hugsa.

Kannski ekki neitt eða elskar þú

mig...?

 

Þegar við elskumst var allt

svo bjart og gott, en þegar þú

fórst

var eins og loftið yrði súrt og

vont að anda.....

 

svo ég sleppti því...


Hann Viðar Guðbjörn frændi þinn samdi ljóð til að setja hér á síðuna þína


Sesar

Nú er kominn afmælisdagurinn þinn

og þú ert engill á himni.

Stóra stjarnan er stjarnan þín.

Minningar um þig og mig

geymi ég í hjarta mínu.



Við munum vera saman á afmælisdeginum þínum eins og áður

Mamma og pabbi

Siggi og Sara

Didda og Gulli

Viðar Guðbjörn

Amanda Mist

Alís Þóra


» 6 hafa sagt sína skoðun

04.03.2011 00:00:35 / sesar

Fimm ár eru nú liðin...



Í dag eru fimm ár síðan þú fórst frá okkur í annan heim. Við hugsum enn til þín á hverjum degi og minningarnar sem við eigum um þig fá okkur alltaf til að brosa. Þó svo við söknum þín þá vitum við að þú ert með okkur í því sem við tökum okkur fyrir hendur á degi hverjum. Minningarnar okkar eru það dýrmætasta sem við eigum eftir að þú fórst og þeim getum við deilt á milli okkar þegar við minnumst þín í dag.

Mamma og pabbi  fóru í húsbílaferð en þær urðu færri en til stóð þar sem heilsan var ekki nógu góð hjá mömmu en allt er á réttri leið í dag, en von er á fleiri ferðum á komandi sumri.

Siggi fikrar sig nær Hollywood lífinu, hann er komin í leiklistina, sjónvarpsþætti og leiksýningu á Melum, já hann er fær í flestan sjó, strippar í Með fullri reisn ásamt körlunum úr sveitinni. Það fækkar allavega ekki í vinkonuhópnum hans.

Didda er í fæðingarorlofi en fer síðan að vinna aftur hjá Samherja þegar haustar, Gulli er enn á sjónum hjá HB Granda.

Sara er aðalfjósameistari á Brakanda og unir hag sínum vel þar.

Viddi stendur sig vel námslega í skólanum en líkist þér ótrúlega mikið þegar kemur að stríðni meðal bekkjarfélaga. Æfir fótboltann af kappi eins og öll hin árin. Finnst gott að komast í sveitina og gista í rúminu þínu.

Amanda Mist heldur áfram að stjórnast í okkur hinum eins og henni einni er lagið. Hún er sannkölluð prinsessa og hugsar allt út frá flottum kjólum, glingri og þess háttar. Einnig er hún byrjuð að æfa dans.

Alís Þóra er nýji sólargeisli fjölskyldunnar, hún fæddist 27. september. Hún var skírð í höfuðið á þér, Alís þýðir björt og skínandi en þannig er stjarnan þín á himninum. Þóra er auðvitað kvenmannsnafnið að seinna nafninu þínu. Hún mun fá að heyra sögunar um þig þegar hún eldist.

Við erum þakklát fyrir tímann sem við áttum með þér og munum aldrei gleyma þér elsku Sesar Þór. Haltu áfram að leiða okkur inní framtíðina og standa með okkur í því sem við tökum okkur fyrir hendur . Þú átt björtustu stjörnuna á himnum í dag eða svo segir hún Amanda Mist .

Við elskum þig Sesar Þór og Guð geymi þig

Mamma og pabbi

Siggi og Sara

Didda og Gulli

Viðar Guðbjörn

Amanda Mist

Alís Þóra



» 12 hafa sagt sína skoðun

16.06.2010 00:09:56 / sesar

24 ára afmælisdagurinn þinn...



Til hamingju með daginn Sesar okkar... :)

Þau ljós sem skærast lýsa,
þau bera mesta birtu
en brenna líka hraðast
og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómur fellur
og dóm þann enginn skilur.

En skinið logaskæra
sem skamma stund oss gladdi
það kveikti ást og yndi
með öllum sem það kvaddi.
Þótt burt úr heimi hörðum
nú hverfi ljósið bjarta
þá situr eftir ylur
í okkar mædda hjarta.
Höf: Óþekktur

Mamma, Pabbi, Siggi og Sara
Didda, Gulli, Viddi og Amanda


» 5 hafa sagt sína skoðun

04.03.2010 00:02:11 / sesar

Liðin eru fjögur ár...


Í dag eru komin fjögur ár, já tíminn líður hratt en við höfum ekki gleymt þér Sesar okkar. Hugsum til þín á hverjum degi og minnumst alls þess sem þú gafst okkur á meðan þú varst hér. Þú ert ekkert farinn frá okkur, fluttir bara í annan heim til að geta leiðbeint okkur áfram í gegnum lífið.

Pabbi og mamma keyptu sér húsbíl á síðasta ári og hefur fyrsta ferð verðið ákveðin, þau ætla til Vestmannaeyja í júní að horfa Vidda keppa í fótbolta. Já nú hafa þau enga ástæðu til að sleppa því að elta hann hingað og þangað um landið.

Siggi bóndi sinnir kúm, kindum og hestum og kannski fer hann að finna konuefnið sitt.

Sara stundar nám við Búvísindadeild Landbúnaðarháskóla Íslands á Hvanneyri.

Didda vinnur enn hjá Samherjakóngunum og líkar það vel, Gulli er á sjó hjá HB Granda.

Viddi stundar allar þær íþróttir sem hann kemst í, fer út að hlaupa um helgar þegar honum vantar hreyfinguna. Stendur sig með sóma í skólanum, tvær tíur eftir haustönnina. Í dag eru æfingaleikir við KA og að sjálfsögðu ætlar hann að standa sig vel og sýna þér hversu góður hann er orðinn.

Amanda Mist  “rúsínubolla“  er mikill fjörkálfur  og heldur okkur hinum við efnið hverju sinni. Hún segir að þú eigir heima í sveitinni en komir stundum með afa í Sesarsbílnum í heimsókn til hennar. Hún veit alveg hver þú ert þó hún hafi ekki hitt þig þegar þú varst hér hjá okkur, en við hin erum dugleg að segja henni frá þér.

Elsku Sesar haltu áfram að vera með okkur og taka þátt í okkar daglega lífi. Takk fyrir að láta vita af þér reglulega.

Við elskum þig Sesar Þór og biðjum Guð að geyma þig

Pabbi og mamma

Siggi og Sara

Didda og Gulli

Viddi og Amanda


» 5 hafa sagt sína skoðun

16.06.2009 12:00:01 / sesar

23ja ára afmælisdagurinn...



Til hamingju með daginn elsku Sesar okkar.

Á hverjum afmælisdegi óska ég þér
nýrrar ástar á einhverju sem fagurt er,
nýrrar gleymsku gagnvart því sem stríðara
reynist, meira stolts af hinu vegsamaða,
sætari friðar frá því sem brýnt er
og betri varnar gegn áhyggjum.
Og að tíminn líði hægar
þegar þú ert hamingjusamur
en erfiðir dagar fljúga hraðar hjá.

                                                                    John Ruskin (1819-1900)


Pabbi, Mamma, Siggi, Sara,
Didda, Gulli, Viðar og Amanda.



» 10 hafa sagt sína skoðun

04.03.2009 00:01:42 / sesar

Þrjú ár liðin...

TinyPic image

Í dag eru komin þrjú ár, ótrúlegt hvað tíminn hefur flogið áfram, en samt höfum við ekki gleymt þér Sesar okkar. Við munum enn eftir brosinu þínu, stríðninni frá þér og þann metnað sem þú lagðir í fótboltann hjá Þór.

Þú lifir með okkur enn í dag og ekki líður sá dagur að við hugsum ekki til þín, þær minningar ylja okkur í hvert skipti.

Pabbi er enn töffari á sportbíl með einkanúmerinu þínu á. Litla frænka þín þekkir “afabíl” frá öðrum eins bílum. Það hlýtur að vera vegna bílnúmersins :)

 Mamma stendur sig vel í skólanum og er komin í sjúkraliðanám, já ekki annað hægt en að vera stolt af henni.

 Siggi færir sig nær því að gerast bóndi, hann sinnir búinu á Brakanda með pabba.

 Sara býr í sveitinni, sinnir þar kúm og kindum ásamt pabba og Sigga, já þau tvö virðast hafa tengst sveitinni tryggðarböndum :) 

 Didda vinnur hjá Samherja og líkar það mjög vel. Gulli er hins vegar komin á sjó hjá HB Granda á skip sem heitir Örfirisey.

 Viddi litli frændi þinn var valinn af yngra ári 6. flokks til að fara á fótboltamót í Vestmannaeyjum í sumar, er það mikil hvatning fyrir hann að vera valinn. Hann veit að þú ætlar með honum. Hann lifir fyrir fótboltann og fótboltaspilin sín :) 

 Amanda litla ráðsmennsku prinsessa á oft á tíðum sniðug gullkorn. Hún horfði á stóru myndina af þér á veggnum í stofunni um daginn og sagði: Nenene bubu þú nærð mér ekki! Þegar við fórum til þín á aðfangadag vissi hún að við vorum að fara í heimsókn til þín, það var nóg að sjá myndina af þér á krossinum þá vissi hún að þú áttir heima þar. Þegar við keyrum framhjá segir hún: Þarna á Sesar heima! Ekki lengi að læra :)

 Elsku Sesar haltu áfram að vísa okkur leiðina inn í framtíðina eins og þú hefur gert, þá verður allt svo miklu auðveldara hjá okkur


 
Hver minning dýrmæt perla að liðnum lífsins degi

hin ljúfu og góðu kynni af alhug þakka þér

þinn kærleikur, í verki var gjöf, sem gleymist eigi

og gæfa var það öllum, er fengu að kynnast þér.

(I.S.)

 

Við elskum þig Sesar Þór og biðjum Guð að geyma þig 

Pabbi og mamma

Siggi og Sara

Didda og Gulli

Viddi og Amanda


» 11 hafa sagt sína skoðun

16.06.2008 00:22:01 / sesar

22 ára afmælisdagurinn þinn...

Til hamingju með daginn elsku Sesar okkar

Þá er hann runninn upp þriðji afmælisdagurinn þinn frá því að þú kvaddir okkur 4.mars 2006.  Við vitum og skynjum að þú fylgist með okkur, hvíslar að okkur því sem við eigum að gera þegar við stöndum frammi fyrir erfiðum ákvörðunum, já hún er góð hjálpin sem við höfum fengið frá þér eftir að þú fórst.
16. júní er þinn dagur, dagur sem við fjölskyldan munum alltaf eyða saman og gera eitthvað saman í tilefni hans, höldum okkur við það að fá okkur kakó með rjóma og tertusneið á kaffihúsi saman.  Þessi dagur er sannkallaður fjölskyldudagur og mun vera það áfram um ókomin ár til að minnast þín, elsku Sesar okkar

Okkur hættir til að lifa í framtíðinni, ekki núinu.
Við segjum: “Þegar ég klára skólann, þegar ég er kominn með prófið, þá byrjar lífið í alvöru.” Þegar þeim áfanga er náð segjum við: “Já fínt, en þá er að fá vinnu.”
Og svo er það bíllinn og síðan þak yfir höfuðið og þannig áfram. Við kunnum ekki að lifa í núinu, við frestum því þangað til seinna, bara seinna, óvíst hvenær.
En það er nú sem við lifum ef við viljum ekki að lífið gangi okkur úr greipum.
Thich Nhat Hanh

Haltu áfram að vernda okkur og vísa okkur veginn inn í framtíðina

Pabbi og Mamma
Siggi og Sara
Didda og Gulli
Viddi og Amanda


» 11 hafa sagt sína skoðun

04.03.2008 00:01:34 / sesar

Í dag eru tvö ár liðin...

Click for Full Size View 
Teikning eftir Hannes Bjarna

Í dag eru tvö ár síðan þú kvaddir þennan heim og fluttir í annan þar sem þú getur fylgst með okkur og vísað okkur veginn inn í framtíðina. Nú er amma Steingerður komin til þín og þið hafið það örugglega gott saman, henni þótti alltaf svo vænt um hann Sesar sinn.

Pabbi á enn Mözduna og hann mun ekki skipta honum út enda er bílinn kallaður “Sesarsbíllinn” af honum Vidda frænda þínum.

Mamma er enn í skólanum og er meira að segja búin að afreka að fara til útlanda, já betra er seint en aldrei.

Siggi er í sveitinni og kalla má hann “hægri hönd föður síns”. Hann keypti síðasta sumar bláu Toyotuna sem Sesar átti.

Didda vinnur enn hjá Samherja og Gulli er á sjó hjá Samherja, sannkallað "Samherja-par" þar á ferð, þau festu kaup á Litluhlíð 2A síðasta sumar.

Sara vinnur á Tilraunabúinu á Möðruvöllum og er í fjarnámi við VMA.

Viddi litli hefur þroskast mikið á þessum tíma, honum gengur vel í skólanum og æfir fótboltan af kappi þrisvar í viku.

Amanda eða litla “ráðskonan” stendur sig vel og er sannkallaður sólargeisli og nammigrís.

Í minningu vinar

Þó tapir vini og hann hverfi þér frá

Þá minningu hans ekki gleymum

Og ég segi þér þá

Hver stund svo dýrmæt

Er í huga vorum geymum

Og mína hugsun í té þér læt

Þó lítilmótleg virðist flestum

Því vináttan sönn hún spinnur sögu

Og í hjarta þér þarfnastu að fá

Að aldrei ég né þú við gleymum

Þær stundir og kjark er vináttan skóp

Sértu glaður verður hann glaður

Sértu dapur veldurðu kvöl

Því sérhver hugsun verður að himnadvöl

Sem vinurinn heyrir

Þó mælir eigi að vörum

Og hann hugsun vora fyllir af svörum

Sá tími kemur er

Þangað við förum

Og upplifum hans kærleikans náð

Sem kristur um guðsbörn

Sín hefur stráð

En Okkar námi er ekki lokið

Því Lífið hefur tilgang

Þar til honum er náð

(J.R.S)


Við elskum þig Sesar okkar og biðjum Guð að geyma þig.

Pabbi og Mamma

Siggi og Sara

Didda og Gulli

Viddi og Amanda


» 14 hafa sagt sína skoðun

16.06.2007 00:05:58 / sesar

21 árs afmælisdagurinn þinn

 

 TinyPic image

Til hamingju með afmælið elsku Sesar okkar.

Nú er hann runninn upp, afmælisdagurinn þinn í annað sinn eftir að þú kvaddir þennan heim. Ótrúlegt hvað lífið hefur kennt okkur á þessum tíma. Okkur finnst samt alltaf þú vera með okkur hvar sem við erum eða hvert sem við förum. Stundum skynjum við návist þína svo sterkt að það er eins og þú standir við hliðina á okkur, “ósýnilegur” eins og hann frændi þinn myndi segja. Þessi dagur verður alltaf dagurinn þinn sem við, fjölskyldan þín, komum saman og gerum eitthvað til að minnast þín, ætli við fáum okkur ekki kakó með rjóma í tilefni dagsins eins og í fyrra, bara fyrir þig elsku Sesar.  

Haltu áfram að passa okkur og vísa okkur veginn inn í framtíðina.

 Við elskum þig

Pabbi og Mamma

Siggi og Sara

Didda og Gulli

Viðar og Amanda


» 37 hafa sagt sína skoðun

04.03.2007 00:07:55 / sesar

Nú er ár síðan að Sesar okkar lést í bílslysi

Að missa svo náin ástvin eins og Sesar, hefur kennt okkur það að ekki er sjálfgefið að eiga son eða bróður, þess vegna er nauðsynlegt að segja þeim sem eru okkur kærir hversu mikils virði þeir eru okkur. Okkur hefur fundist árið líða bæði lengi og fljótt og verið á svo margan hátt skrítið. Eflaust finnst okkur það þar sem við höfuð einnig átt gleðidaga eftir 4. mars í fyrra þegar okkur fannst lífið vera mjög ósanngjarnt.  

Pabbi keypti sér nýjan bíl, Mözdu 6, ber þessi bíll einkanúmerið sem Sesar átti, “SESAR”, og var það gert í virðingarskyni við hann og númerið sett á bílinn á afmælisdaginn hans 16. júní.  Mamma er komin á skólabekk, í Verkmenntaskólanum á Akureyri og erum við hin í fjölskyldunni stolt af eiginkonu, mömmu og ömmu.  Siggi hætti hjá BM Vallá og sinnir nú búinu á Brakanda með pabba sínum.

Didda útskrifaðist frá Háskólanum á Akureyri sem viðskiptafræðingur og er nýbyrjuð að vinna á skrifstofu Samherja. Sara útskrifaðist frá Bændaskólanum á Hvanneyri sem búfræðingur og vinnur nú í afgreiðslu Brauðgerð Kristjáns og co.

Viddi er byrjaður í grunnskóla og æfir af fullum krafti með Íþróttafélaginu Þór, til að verða góður eða jafnvel betri en frændi sinn. Þó svo að eitt ljós hafi slokknað í fjölskyldunni fyrir ári síðan þá kviknaði annað þegar lítill sólargeisli, hún Amanda Mist, kom í heiminn á fallegum sumardegi í júlí. Það var gleðidagur og var það amma sem var fyrst til að líta hana augum.  Gulli pabbi hennar hefur einnig bæst við fjölskylduna.

Lífið heldur áfram þótt einhver deyji, þetta sagði Sesar við mömmu sína þegar ein frænka okkar dó. Við skulum hafa það hugfast að það sem af er árinu hefur enginn látist í bílslysi en Sesar var sá fimmti í fyrra, endilega farið varlega í umferðinni og akið í samræmi við aðstæður. Við trúum því og vitum að Sesar fylgist með og passar okkur, Guð hefur vantað fallegan engil til sín og tók þess vegna Sesar, þennan glaðlega, brosmilda og stríðna strák sem hafði verið ætlað annað en að vera lengur hér á jörðinni hjá okkur hinum.

Megi Guð og gæfan fylgja okkur um ókomin ár. 

Kærar kveðjur 

Pabbi, Mamma, Siggi og Sara

Didda, Gulli, Viddi og Amanda 

 


» 44 hafa sagt sína skoðun

04.01.2007 20:57:43 / sesar

Nýtt ár...2007

Gleðilegt nýtt ár og takk fyrir allan stuðninginn á árinu 2006.

Fjölskyldan vill þakka öllum þeim sem skrifað hafa á síðuna og þann styrk sem þið hafið sýnt okkur á síðasta ári.

Megi nýtt ár færa okkur öllum hamingju, ást og gleði.

 

 



Kveðjur frá fjölskyldunni

Viðar, Ella, Siggi og Sara

Didda, Gulli, Viddi og Amanda


» 14 hafa sagt sína skoðun

02.12.2006 19:48:49 / sesar

Lag í spilun á VOICE 98,7 á Akureyri...

Image hosting by TinyPic

Nú er komið lag í spilun á VOICE 98,7, til minningar um Sesar Þór. Lagið heitir "Vinarkveðja". Textinn er er eftir frænda okkar, Jósavin H. Arason. En textinn sem er til hliðar í valmyndinni undir "Bænastund í Akureyrarkirkju". Jósavin orti þetta ljóð að kvöldi 4. mars. Lagið er eftir Evu Birgisdóttur, 17 ára frænku okkar. Hún syngur lagið ásamt Erlu systur sinni.

Nú er bara um að gera, að hringja inn á VOICE 98,7 og fá að heyra lagið spilað.

Nú er diskurinn kominn i sölu og fæst hann í Olís Tryggvabraut, Félagsheimili Þórs í Hamri og í Músik og myndir í Sunnuhlíð. Hann kostar 500 krónur.

Kveðja

Sara Hrönn


» 27 hafa sagt sína skoðun

04.09.2006 14:23:45 / sesar

Hálft ár....síðan þú kvaddir þennan heim...

Image hosting by TinyPic

Elsku Sesar

Í dag er hálft ár síðan þú lentir í bílslysi og kvaddir þennan heim. Tíminn er fljótur að líða...  Minningar skjóta oft upp í kollinn á okkur, um þig, litla prakkarann, unglinginn eða þann sem var með bíladelluna... Vinir þínir hafa verið mjög duglegir að kíkja á síðuna og skrifa falleg orð. Okkur þykir mjög vænt um það og viljum við þakka þeim fyrir það og megiði endilega halda því áfram.

Pabbi, Mamma, Siggi, Didda, Sara og Viddi


» 47 hafa sagt sína skoðun

16.06.2006 00:01:03 / sesar

Afmælisdagurinn 16. júní 2006...

Image hosting by TinyPic

 

 

 

w

Elsku Sesar okkar

w

 

 

 

 

 

Fegurðin er frá þér barst
fullvel þótti sanna
að yndið okkar allra varst
Engill meðal manna.
w
Hlutverk þitt í heimi hér
þú hafðir leyst af hendi
af þeim sökum eftir þér,
Guð Englahópa sendi.
w
Sú besta gjöf er gafst þú mér
var gleðisólin bjarta
sem skína skal til heiðurs þér
skært í okkar hjarta.
w

 

 

Til hamingju með tvítugsafmælið í dag. Tíminn líður rosalega hratt, svo stutt síðan þú varst að tala um að halda upp á afmælið þitt í sveitinni.

Í kvöld förum við á leik Þórs og KA á Akureyrarvelli, vitum að þú verður þar að hvetja þitt lið áfram.

Við hugsum til þín.

Pabbi, Mamma, Siggi, Didda, Sara og Viddi.


» 55 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2
Heimsóknir
Í dag:  8  Alls: 121765
Dagsetning
8. febrúar 2012
Klukkan